B.05 Greining atvinnusóknar
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliðir
Helga Jónsdóttir, skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu - [email protected]
Sigurður Árnason, Byggðastofnun - [email protected]
Verkefnið
Markmið: Að ferðaleiðir verði greindar vegna atvinnusóknar, þ.e. ferða milli heimilis og vinnustaðar.
Stutt lýsing: Skilgreint verði staðfang vinnustaðar og tíðni ferða milli heimilis og vinnustaðar þar sem slík greining er nauðsynleg forsenda þess að beita megi hagrænum hvötum við þróun atvinnusóknarsvæða. Upplýsinga verði m.a. leitað um það hvernig slíkum upplýsingum er safnað í Noregi.
- Ábyrgð: Fjármála- og efnahagsráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun.
- Dæmi um samstarfsaðila: Forsætisráðuneytið, innviðaráðuneytið, Skatturinn, Þjóðskrá Íslands og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
- Tímabil: 2022-2023.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 9 og 11, einkum undirmarkmið 9.1, 11.2 og 11.a.
- Tillaga að fjármögnun: 2 millj. kr. af byggðaáætlun.