Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins
Hlutverk sjóðsins er að tryggja sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum lífeyri samkvæmt ákvæðum 6. greinar laga um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.
Stjórn sjóðsins skal skipuð átta mönnum. Fjármála- og efnahagsráðherra, skipar fjóra stjórnarmenn, stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja skipar tvo stjórnarmenn, stjórn Bandalags háskólamanna skipar einn stjórnarmann og stjórn Kennarasambands Íslands skipar einn stjórnarmann. Jafnframt skulu sömu aðilar skipa jafnmarga menn til vara. Skipunartími stjórnarmanna er þrjú ár. Stjórnin kýs formann úr sínum hópi til eins árs í senn. ,
Nefndarfólk skipað af fjármála- og efnahagsráðherra (skipuð 2024-2026):
- Guðrún Ögmundsdóttir
- Jökull Heiðdal Úlfsson
- Ólafur Hvanndal
- Ragnhildur Jónsdóttir
Til vara:
- Drífa Kristín Sigurðardóttir
- Óttar Snædal Þorsteinsson
- Viðar Helgason
- Þórdís Steinsdóttir