Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins.
Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 978/2019 um úthlutina, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2020:
Vöruliður: |
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
Magntollur |
kg |
% |
kr./kg |
|||
0201/0202 |
Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt, kælt eða fryst |
01.01. - 30.06.20 |
273.500 |
0 |
0 |
0203 |
Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst |
01.01. - 30.06.20 |
350.000 |
0 |
0 |
0207 |
Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst |
01.01. - 30.06.20 |
428.000 |
0 |
0 |
ex0207 |
Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu |
01.01 - 30.06.20 |
100.000 |
0 |
0 |
0210 |
Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum |
01.01. - 30.06.20 |
50.000 |
0 |
0 |
ex 0406 |
Ostur og ystingur (**) |
01.01. - 30.06.20 |
92.500 |
0 |
0 |
0406 |
Ostur og ystingur |
01.01. - 30.06.20 |
152.500 |
0 |
0 |
1601 |
Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum |
01.01. - 30.06.20 |
125.000 |
0 |
0 |
1602 |
Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum |
01.01. - 30.06.20 |
200.000 |
0 |
0 |
(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið ex 0406(**) en auglýstum tollkvóta nemur skal tollkvótanum úthlutað eftir hlutkesti. Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 448/2012. Úthlutað verður til sex mánaða í senn líkt og framkvæmdin var vegna ársins 2019, þ.e. vörumagn vegna ársins 2020 er helmingað.
Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 20. nóvember 2019.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu,
11. nóvember 2019.