Ráðherrafundir í Brussel
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra sótti ráðherrafundi í Brussel þann 5.-6. desember síðastliðinn. Þar var annars vegar um að ræða fund samstarfsvettvangs ESB um takmörkun á áróðursefni hryðjuverkamanna á veraldarvefnum og hins vegar fund ráðherra innanríkis- og dómsmála í tengslum við Schengen-samstarfið.
Á Schengen-fundinum hafði Ísland aðgang að fyrstu tveimur dagskrárliðunum sem vörðuðu tillögur Austurríkis sem gegnir formennsku Ráðsins, um breytingar á reglugerð um Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex) og upplýsingar um framvindu tillögunnar um breytingu á tilskipun um brottvísun þeirra sem dvelja ólöglega innan Schengen-svæðisins.
Þá átti ráðherra jafnframt góðan fund með Gunnari Pálssyni, sendiherra Íslands í Brussel, og Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) um EES tengd málefni sem falla undir ábyrgðarsvið dómsmálaráðherra, svo sem almannaöryggi, persónuvernd, vopnamál og fleira.
Dómsmálaráðherra lagði áherslu á mikilvægi þess að gætt yrði að hagsmuna Íslands á þessum vettvangi og lagðar voru fram nokkrar tillögur að breyttu verklagi sem hafa fengið góðan hljómgrunn.