Kynningarfundur og undirbúningsnámskeið vegna löggildingarprófa fyrir dómtúlka og skjalaþýðendur
Löggildingarpróf fyrir dómtúlka og skjalaþýðendur verða haldin 15. og 16. febrúar 2016 að undangengnu kynningar- og undirbúningsnámskeiði á vegum Þýðingarseturs Háskóla Íslands. Kynningarfundur fyrir þá sem hyggjast þreyta löggildingarpróf verður haldinn mánudaginn 14. september n.k. kl. 16:00 í stofu 210 í Stapa (áður Félagsstofnun stúdenta) við Hringbraut, Reykjavík.
Undirbúningsnámskeið fer fram í stofu A052 í kjallara aðalbyggingar Háskóla Íslands laugardagana 26. september, 17. október, 31. október og 21. nóvember n.k. kl. 10-16. Próftökum er skylt að sækja undirbúningsnámskeiðið nema þeir hafi áður þreytt prófin.
Umsóknir á eyðublöðum sem fást hjá Sýslumanninum í Vestmannaeyjum og á vefnum www.syslumenn.is skulu berast Sýslumanninum í Vestmannaeyjum, Heiðarvegi 15, 900 Vestmannaeyjum eða rafrænt á netfangið [email protected], í síðasta lagi þann 24. september n.k. Prófgjald fyrir þá sem taka prófið í fyrsta sinn í báðar áttir er 160.000 kr. en 120.000 kr. fyrir þá sem taka prófið aðeins í aðra áttina eða eru að endurtaka prófið. Prófgjaldið skal greiða inn á reikning embættisins nr. 0582-26-2, kt. 490169-7339 í síðasta lagi þann 1. október n.k. og skal staðfesting á greiðslu fylgja umsóknum eða sendast sérstaklega á ofangreint netfang. Námskeiðsgjald er innifalið í prófgjaldi. Nánari upplýsingar veitir Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum í síma 458 2900 og á netfanginu [email protected].
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
9. september 2015.